Síðast uppfært: 25.maí 2018.
Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, látins eða lifandi.

Það þýðir að lögin taka til upplýsinga um fólk, en t.d. ekki til upplýsinga um fyrirtæki og dýr. Eina undantekningin frá því er sú að lögin taka til upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila.

Upplýsingarnar verða að vera nógu nákvæmar til að hægt sé að sjá hvaða einstaklingi þær tilheyra. Hér getur t.d. verið um að ræða nöfn, kennitölur, heimilisföng eða önnur einkenni tiltekins einstaklings.

Þetta verður að meta hverju sinni með hliðsjón af því hvaða upplýsingar unnið er með. Sem dæmi má nefna að viðhorfskönnun þar sem engum upplýsingum um þátttakendur er safnað, nema e.t.v. upplýsingum um aldursbil (20-30 ára) og kyn, telst ekki vera söfnun persónuupplýsinga. Ef hópurinn sem tekur þátt í könnuninni er hins vegar þannig samansettur, að mjög fáir einstaklingar eru á tilteknum aldri eða af öðru hvoru kyninu getur verið um persónuupplýsingar að ræða.

Persónuvernd. (e.d.) Grundvallarhugtök. Sótt af

Persónuverndarstefna Bogasteinn.is

Bogasteinn.is virðir einkalíf þitt og við þökkum þér fyrir að treysta okkur fyrir upplýsingum um þig. Í þessari persónuverndarstefnu útskýrum við hver við erum, ástæðuna fyrir því að við vinnum með gögn um þig, hvernig við vinnum úr þeim, með hverjum við deilum þeim, hversu lengi við geymum þau og hvernig þú getur haft samband við okkur og nýtt þinn rétt.

Persónuupplýsingar þínar eru meðhöndlaðar af Indriði R: Grétarsson, kt 251176-5589 Laugatún 3 550 Sauðárkrókur hefur umboð yfir persónuupplýsingum þínum í þeim tilgangi sem er tekinn fram hér.

Fyrir nánari upplýsingar um meðferð á persónulegum upplýsingum getur þú haft sambandi við okkur með því að senda okkur póst á [email protected]

Hvers vegna þurfum við upplýsingar um þig?

Bogasteinn.is notar persónuupplýsingar um þig í eftirfarandi tilgangi:

1. Þjónusta

Bogasteinn selur vörur og þjónustu tengda bogfimi ofl, líkt og heimsendingu og samsetningu, á vef. Við notum upplýsingar þínar til að framfylgja sölu-, kaup-, láns-, leigu- og þjónustusamningi eða til að framfylgja samningi að þinni beiðni.

2. Þjónustuaðilar og verktakar

Í sumum tilvikum notast Bogasteinn.is við þriðja aðila til að sinna þjónustu fyrir okkar hönd. Það á við um til dæmis vinnslu á debet- og kreditkortafærslum og vöruflutninga. Bogasteinn.is hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu. Skýjaþjónusta er netþjónusta sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að nota hugbúnað og tæki hjá þriðju aðilum. Til að mynda felst slík þjónusta í varðveislu upplýsinga í netþjónum, tölvupóstþjónustu og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.

Ef þriðji aðili þarf að nota persónuupplýsingar þínar í tengslum við þjónustu, gætum við þess að þær séu aðeins notaðar í þeim tilgangi. Þeim er einnig skylt að fara með upplýsingarnar sem trúnaðarupplýsingar og/eða að skila þeim til okkar þegar notkun á þeim er lokið.

3. Viðskiptareikningar

Hverjum viðskiptareikningi hjá Bogasteinn.is er stjórnað af eiganda og hann hefur heimild til að gera breytingar á reikningnum. Vinsamlega athugið að upplýsingar um allar aðgerðir sem framkvæmdar eru undir viðkomandi viðskiptareikningi, þ.m.t. allar viðskiptafærslur, eru sýnilegar eiganda viðskiptareiknings.

Er persónuupplýsingum deilt með öðrum?

Persónuupplýsingum er ekki deilt með 3 aðila

Hver er réttur minn?

Þú getur krafist eftirfarandi af okkur:

● Aðgangs að öllum persónuupplýsingum sem við höfum um þig.

● Leiðréttingar á röngum eða ófullgerðum persónuupplýsingum um þig.

● Eyðingar eða takmörkunar á notkun persónuupplýsinganna.

● Ef notkun á persónuupplýsingum er háð samþykki þínu og þær voru sóttar á sjálfvirkan hátt hefur þú rétt á að fá persónuupplýsingar sendar til þín á uppsettu, notendavænu og tölvutæku formi.

Beiðni þín fær strax afgreiðslu til að tryggja að réttindum þínum sé framfylgt. Þú gætir þurft að framvísa skilríkjum til að tryggja að persónuupplýsingum sé einungis deilt með eigandanum.

Hafðu þó í huga að í einhverjum tilfellum gæti tekið tíma að framfylgja beiðninni. (Til dæmis af lagalegum ástæðum).

Þú færð upplýsingar um allar ákvarðanir og aðgerðir innan mánaðar frá því að þú sendir beiðni.

Þú hefur einnig rétt á að senda inn kvörtun til Persónuverndar.

Réttur til að nálgast upplýsingar

Þú hefur rétt til að sækja staðfestingu frá Bogasteinn.is um hvort verið sé að nota persónuupplýsingar þínar, og ef svo er, að nálgast þær samkvæmt lögum.

Réttur til leiðréttingar

Þú hefur rétt til að krefja Bogasteinn.is fyrirvaralaust um leiðréttingu á röngum eða ófullgerðum upplýsingum um þig.

Réttur til að eyða gögnum

Þú hefur rétt til að krefja Bogasteinn.is fyrirvaralaust um að eyða upplýsingum ef eitthvað af eftirfarandi á við:

a) Persónuupplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem þær voru sóttar og unnið var úr þeim.

b) Þú dregur til baka samþykki fyrir meðhöndlun upplýsinga (þegar meðhöndlun er aðeins leyfileg með samþykki) og það eru enginn lagalegur grundvöllur fyrir gagnavinnslu.

c) Þú ert mótfallin/n gagnavinnslu og það eru engar lagalegar ástæður til að vinna úr upplýsingunum.

Réttur til að takmarka gagnavinnslu

Þú hefur rétt til að krefja Bogasteinn.is um að takmarka gagnavinnslu ef eitt af eftirfarandi á við:

a) Þú rengir nákvæmni persónuupplýsinganna á þeim tíma sem Bogasteinn.is getur staðfest réttmæti þeirra.

b) Gagnavinnslan er ólögmæt og þú ert mótfallin/n því að eyða upplýsingum þínum og krefst frekar að notkun gagnanna sé takmörkuð.

c) Bogasteinn.is hefur ekki lengur þörf á persónuupplýsingum til að vinna úr en þú krefst þess að fá upplýsingarnar af lagalegum ástæðum.

d) Þú ert mótfallin/n gagnavinnslu, nema ef ástæður Bogasteinn.is eru yfirsterkari.

Réttur til að fá afhent gögn

Ef meðferð á persónuupplýsingum er háð samþykki og þær voru sóttar á sjálfvirkan hátt hefur þú rétt á að fá þær sendar til þín á uppsettu, notendavænu og tölvutæku formi.

Réttur til að mótmæla

Þú hefur rétt til að mótmæla meðferð á persónuupplýsingum þínum hvenær sem er ef þær eru notaðar í tengslum við: 1) lagalega hagsmuni Bogasteinn.is 2) beina markaðssetningu 3) persónugreiningu.

Get ég dregið samþykki mitt til baka?

Ef samþykki er lagalega nauðsynlegt til að meðhöndla persónuupplýsingar hefur þú rétt til að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er. Þegar þú dregur samþykki þitt til baka hefur það ekki áhrif á lögmæti meðhöndlunar sem er byggð á samþykki áður en það var dregið til baka. Að auki hefur það ekki áhrif á lögmæti meðhöndlunar á sömu gögnum sem er byggð á öðrum grunni – til dæmis á lagalegri skyldu eða til að framfylgja samningi.

Ef þú óskar eftir að draga samþykki þitt til baka getur þú haft samband við okkur með því að senda tölvupóst á [email protected]

Hvernig notar Bogasteinn.is vafrakökur og áþekka tækni?

Við notum vafrakökur til að veita þér betri þjónustu. Vafrakökur eru smáar textaskrár sem eru geymdar á tölvunni þinni eða á netþjóni.

Bogasteinn.is notar þessa tækni að mestu til að:

● Geyma IP-tölu notanda. Upplýsingar frá vafraköku auðkenna notandann og ef hann hefur sótt um þjónustu, tekið þátt í samkeppnum eða viðburðum þá gefa þær kerfinu aðgang að upplýsingum sem við geymum. Þannig getum við lagað notendastillingar að þér og auðveldað þér að nota þjónustu okkar.

● Rannsaka og greina á milli reglulegra og nýrra notenda þannig að við getum reiknað út fjölda notenda og uppfært þá tölu.

● Kynna okkur hvenær notandi sér ákveðinn hluta af vefnum til að koma í veg fyrir að svæðið birtist honum ítrekað.

Í sumum tilfellum söfnum við upplýsingum á vefnum okkar í gegnum tímabundnar vafrakökur. Þessar vafrakökur hverfa þegar þú lokar vafranum. Þær geymast ekki á harða disknum heldur aðeins á tímabundnu minni sem eyðist þegar þú lokar vafranum. Við notum tímabundnar vafrakökur til dæmis til að komast að því hvernig vefurinn okkar er notaður þannig að við getum bætt hönnun hans og notagildi. Tímabundnar vafrakökur eru ekki tengdar auðkennanlegum persónuupplýsingum. Þú getur alltaf sett vafrakökum takmörk með valkostum í vafranum.

Skoðaðu stefnu Bogasteinn.is um vafrakökur.

Gildistími persónuverndarstefnu

Persónuverndarstefna okkar kann að taka breytingum af og til og verður hún þá uppfærð í samræmi við þær breytingar. Vinsamlega fylgstu með þessum upplýsingum til að fylgjast með breytingum. Ef efnislegar breytingar verða gerðar á því hvernig við notum persónuupplýsingar og slíkar breytingar fara ekki saman við þann tilgang sem lýst er í persónuverndarstefnunni, verður það tilkynnt með góðum fyrirvara.